fimmtudagur, nóvember 27, 2008

Að taka ástfóstri...

Gaman þegar maður dettur inná að fara lesa bækur eftir ákveðna höfunda sem hafa þá þegar gefið út heilan helling af bókum. Þá þarf maður ekki að bíða í heillangan tíma eftir næstu bók heldur getur bara spænt í sig næstu og næstu og næstu. T.d. er ég núna búinn að lesa/hlusta á 6 bækur í röð eftir Lois McMaster Bujold (Miles Vorkosigan sögurnar), og þaráður 12 bækur eftir Terry Pratchett í Discworld seríunni. Terry Pratchett hefur gefið út 36 sögur sem gerast í Discworld heiminum. Semsagt nóg eftir þar. Jebb.... gaman gaman. 

miðvikudagur, nóvember 26, 2008

Afi minn og amma mín útá bakka búa...

Jebb... eitthvað er (tæplega) þriggja ára dóttir mín orðin þreytt á lítillri fjölbreytni á lagavali þegar ég er að syngja fyrir hana fyrir háttinn. Greyið fær alltaf að heyra sömu fimm lögin hjá mér áður en hún fer að sofa. En í kvöld var hún búin að fá nóg. Þegar ég söng síðasta lagið fyrir hana, nefnilega "Afi min og amma mín útá bakka búa..." þá söng hún fyrir mig sína útgáfu (líklega leikskólaútgáfu):

Afi minn og amma mín
fóru út að hjóla
afi datt í drullupoll
og þá fór amma að góla

Nokkuð smellið hjá henni finnst mér :) 

miðvikudagur, nóvember 12, 2008

Hrollvekjur og Celine Dion?

Það er kannski sannleikskorn í þessu hjá Elko? Ég var að skoða Bluray listann þeirra yfir hrollvekjur til að sjá hvort að The Thing (ein sú allrabesta) væri komin til þeirra á háskerpunni og þar er ein af myndunum sem eru taldar upp á þeim lista "Celine Dion - A New Day, Live in Las Vegas (Blu-ray)" :) Sjá annars listann hérna

mánudagur, október 20, 2008

Gagnrýni á Ísland?

Það er mikið verið að gagnrýna Ísland í heild fyrir hvernig komið er fyrir bankakerfinu okkar. En kannski ættu þessir blessuðu erlendu aðilar líka að gagnrýna þá sem lánuðu íslensku bönkunum svona (næstum því) endalaust.

Mér finnst síðan í lagi að það væru gerðar nokkrar kröfur á alþjóðasamfélagið eftir þessar hremmingar, t.d.:

1. Engar skattaparadísir, og um leið útrýma undanskotum frá skatti
2. Banna skortsölu og aðra álíka fjármálalega ógjörninga

miðvikudagur, október 01, 2008

Facebook & Nexus & ML & vinnustaðurinn

Hmmm.... þetta facebook apparat hefur nú eiginlega alveg farið frammhjá mér. Ég sá að Nexus búðin ætlar að fara nota Facebook sem einhverskonar skilaboðaskjóðu fyrir bækur & myndir & þvíumlíkt og stofnaði því aðgang til að tékka á þessu. Þegar ég var búinn að fylla út smávegis af upplýsingum um mig þá demdist inn heljar listi yfir Facebook notendur sem ég ætti hugsanlega að kannast við - þar á meðal slatti af vinnufélögum úr bankanum og af bekkjarsystkinum frá ML, nokkuð nett atarna. Læt nú samt vera í bili að bögga allt þetta lið með svokölluðum vinarbeiðnum.

Sumarið 2008 - alveg ágætt


Jebb, þetta er búið að vera ágætis sumar. Fórum í byrjun sumarsins með Dodda & Veru & co. í 3 vikna ferð til Danmerkur. Fyrst var stoppað í Lalandia, æðislegur fjölskyldugarður þar sem nóg var að sýsla fyrir börnin. Síðan voru teknar tvær vikur í sumarhúsi á norður Jótlandi. Algjört primo. Legoland, sædýrasafn, dýragarðar ofl. haft með í pakkanum. Semsagt gargandi snilld. 

laugardagur, maí 17, 2008

Ubuntu á iMac í boði VMWare Fusion á 15 mín.

Ég var ekki í vinnunni í gær þar sem yngsta dóttir mín var veik. Einhver hitavella í gangi sem hún virðist vera laus við núna. En meðan hún tók síðdegislúrinn sinn í gær ákvað ég að "nördast" smávegis. Ég náði í .iso skrá fyrir nýjustu útgáfuna af Linux Ubuntu stýrikerfinu og setti hana upp á iMac tölvunni minni sem sýndarvél í VMWare Fusion. Það að ná í .iso skrána (um 700MB) tók enga stund þar sem hún var aðgengileg á hugi.is, sjálf uppsetningin í VMWare Fusion tók innan við 15 mínútur. VMWare Fusion er vægast sagt svalt apparat, með því er ekkert mál að skoða nýjar útgáfur af ýmsum Linux og Solaris dreifingum án þess að eiga neitt við uppsetninguna á tölvunni sjálfri ásamt því að þú getur einnig keyrt Windows Server/XP/Vista sem sýndarvél - semsagt engin hætta á að skemma neitt. Ég var síðan að lesa í bloggi Fusion hópsins hjá VMWare að útgáfa 2 af VMWare Fusion verði ókeypis fyir þá sem keyptu útgáfu 1 - ekki slæmt. Eða svo maður dragi þetta saman og orði þetta almennt og á klisjukenndan hátt: VMWare rokkar!!!

miðvikudagur, maí 07, 2008

Hvernig fara einstæðar mæður að?

Hmm... þetta er nú ekki alveg pólítískt rétthugsandi fyrirsögn hjá mér... Hvernig fer einstætt foreldri að? Aðeins betra... En svo ég komi mér að efninu þá fór Kristín til Danmerkur á vegum vinnunnar núna á þriðjudaginn og kemur til baka næsta laugardag, og það er sko nóg að gera að sjá einn um þessi þrjú á meðan. Maður þarf í stórum dráttum að ... hætta kl. 15:30 í vinnunni til að sækja fyrst þá yngstu til dagmömmu, síðan sækja strákinn á leikskóla, koma við í búðinni á leiðinni heim - engjast yfir því hvað eigi að vera í matinn, gefast upp og kaupa 1944 rétt, þegar heim er komið þá þarf að hlýða þeirri elstu yfir með flautuna (tónleikar hjá henni á morgunn), hafa samviskubit yfir því maður hafi smellt þeirri yngstu fyrir framan sjónvarpið, að setja í þvottavélina, hafa til matinn (guð sé lof fyrir örbylgjuofninn) og koma honum ofaní liðið, næst allir í náttföt (nema ég), bursta tennurnar í þeim tveimur yngstu - sú elsta sér um sig sjálf, lesa fyrir þá yngstu fyrir háttinn og síðan syngja bíbí & blaka og krummi krunkar úti - þá er hún búin að fá nóg og er alveg sátt við að fara sofa (bara ef hann hættir að syngja!!!), næst er að lesa fyrir strákinn fyrir háttinn og síðan fara þau tvö elstu að sofa, vaska upp (bévítans uppþvottavélin er biluð) & þurrka og ganga frá í eldhúsinu, brjóta saman það sem er orðið þurrt af snúrunum, hengja upp úr þvottavélinni og setja í næstu, ganga frá nestinu í skólann fyrir þá elstu og hafa til fötin fyrir strákinn sem er að fara í sveitaferð með leikskólanum í fyrramálið (og ég fer með). Og þá er klukkan orðin tuttugu mínútur í ellefu! Og ég sem ætlaði að ná að horfa á allt settið af Hringadróttinssögu á meðan Yfirvaldið væri í Danmörku. Það er ljóst að ég þarf að besta þetta ferli eitthvað.

laugardagur, febrúar 23, 2008

PS3 og Unreal Tournament III

Jebb - fór í gær og keypti Unreal Tournament III fyrir PS3. Fantagóður netleikur sem hefur verið að fá topp dóma. Einn kostur sem þessi leikur hefur frammyfir aðra PS3 leiki er að mod eða viðbótarborð sem notendur leiksins geta búið til gengur hvort sem er í PC eða PS3 útgáfuna. Um leið er hægt að breyta leiknum eitthvað, t.d. er komið frekar flott Lego mod fyrir leikinn - frekar fyndið apparat.


sunnudagur, febrúar 03, 2008

Horft aftur á Life of Brian

Ég er safnari. Já ég veit af þessum veikleika og er að reyna lifa með honum. En í síðustu viku réð ég ekki við mig. Ég fór og keypti Blu-Ray útgáfuna af "Monty Python's Life of Brian" sem ég átti fyrir á venjulegu DVD. Yfirvaldið skilur ekkert í þessari áráttu hjá mér og hristir bara hausinn yfir þessu. Ég horfði síðan á myndina aftur í gærkvöldi og síðan einnig á heimildarmynd um gerð myndarinnar - ótrúleg læti sem urðu í kringum myndina á sínum tíma. Trúlega fengist þessi mynd ekki gerð í dag - það má ekki móðga neinn, óþolið fyrir slíku er alveg í hámarki. Life of Brian er tvímælalaust ein besta gamanmynd og ádeilumynd sem gerð hefur verið. Uppáhaldsatriðið mitt í myndinni er skóatriðið þar sem Brian flýr undan "söfnuðinum" sínum og missir af sér skóinn, söfnuðurinn staðnæmist við skóinn þar sem hann liggur á götunni og fer strax að rífast um merkingu þessa - lýsandi fyrir trúarbrögð og klofning þeirra í mismunandi stefnur/trúarhópa með tilheyrandi átökum.

mánudagur, janúar 28, 2008

Guillermo del Toro að leikstýra The Hobbit?

Vonandi verður eitthvað úr þessu. Guillermo del Toro ku vera í viðræðum við New Line Cinema um að leikstýra Hobbitanum (sem verða líklega tvær myndir - best að blóðmjólka kúna). Best hefði að sjálfsögðu verið ef Peter Jackson hefði séð alveg um þetta eins og LOTR - en það verður því miður ekki af því vegna annarra verkefna hjá Jackson (hann var búinn að lofa sér í Tinna fyrir Steven Spielberg). En mér líst mun betur á þessar fréttir heldur en þær að Sam Raimi myndi leikstýra Hobbitanum. Sam Raimi átti snilldarspretti með Evil Dead myndunum og Spider Man 2 (ekki síst að þakka Alfred Molina). En maðurinn klúðraði málunum svo hrikalega stórt í Spider Man 3 að það hálfa hefði verið nóg.

Ferlegt að málin hafi klúðrast svona milli New Line Cinema og Peter Jackson vegna deilna um greiðslur af LOTR myndunum til Jackson. Eftir að sættir náðust með Jackson og New Line varð það að samkomulagi að hann myndi sjá um framleiðslu á Hobbitanum. Það væri frábært ef sama teymið og sá um að skrifa handritið að LOTR myndi sjá um að skrifa handritið fyrir Hobbitan, eiginlega nauðsynlegt - svo ekki sé minnst á það allra nauðsynlegasta.... nefnilega það að Ian McKellen leiki Gandálf.

Guilermo del Toro er topp leikstjóri - eiginlega einn af mínum uppáhalds leikstjórum. Af myndunum hans þá á ég á DVD eða Blu-Ray myndirnar Cronos, Mimic, The Devil's Backbone, Blade II (besta Blade myndin), Hellboy (ein besta myndin gerð eftir comic - stendur jafnfætis Sin City) og Pan's Labyrinth). Hann hefur alveg sannað að hann er jafnvígur á spennu/action og drama og gerir flottar myndir (i.e. gott listrænt auga - a.m.k. að mínu mati). Enda bíður maður spenntur eftir Hellboy II: The Golden Army sem á að koma í bíóhúsin á þessu ári.

sunnudagur, janúar 27, 2008

Mikið var - DRM laus tónlist fyrir alla

Jebb - mikið var. Amazon ætlar á þessu ári að byrja á að selja DRM fría tónlist til allra, þ.e. ekki bara USA heldur okkar hinna líka. Kominn tími á að einhver tæki af skarið í þessum efnum. Þá er bara að vona að þetta sé bara byrjunin á því að vefverslanir almennt séu ekki með skorður á kaupum á rafrænu efni eftir því hvar maður býr (eins og er ennþá í Apple iTunes, PS3 vefverslun, Rapshody, XBox 360 vefverslun, PSP vefverslun ofl.).
Sjá tilkynninguna frá Amazon um þetta hérna

miðvikudagur, janúar 23, 2008

Bók nr. 12 í Wheel of Time seríunni

Þá er víst búið að ákveða hver kemur til með að ljúka við bók nr. 12 í Wheel of Time bókarflokknum eftir Robert Jordan sem dó í september á síðasta ári. Einhver Brandon Sanderson, sem ég hef aldrei heyrt um áður. Gott að þau ætla að ljúka við bókarflokkinn enda kannski leiðinlegt fyrir þá sem eru búnir að lesa allar þær 11 bækur sem eru komnar út að fá ekki eiginleg sögulok. Það er áætlað að bókin komi út vorið 2009 - manni ætti þá að vera óhætt að halda áfram að lesa bækur í þessari seríu fyrst hún verður kláruð, kannski ég fari að klára bók nr. 5.

þriðjudagur, janúar 22, 2008

Mogginn ræður, stjórnar og/eða toppar

Jebb - enginn efi á því mogginn toppar aðrar innlendar fréttaveitur. Sá annars dálítið á mbl.is í gærkvöldi sem tengist þessum blessaða blogghluta á vefnum - eitthvað sem mér fannst nú að gæti farið betur og sendi þeim línu um það - og hókuspókus.... sá ekki betur en að fítusinn hafi komið á vefinn þeirra í dag. Bara ansk. gott hjá þeim. Væri nú svosem gott ef maður gæti slökkt á að sjá þessar blessuðu blogg fyrirsagnir með fréttunum - já já já.... ég er það veiklundaður að ég stelst stundum til að lesa sumar færslurnar og mikið gasalega eru sumar afspyrnu heimskulegar og pirrandi - ekki það að ég hafi neitt gábbulegra framm að færa á mínu eigin bloggi en ég er ekki að troða mínu bloggi á saklausa vegfarendur moggavefsins. Mitt blogg er eiginlega bara fyrir sjálfan mig og þá 2-3 aðila lesa þetta hjá mér af og til, annars myndi ég troða mér á bloggið á mbl.is
Hvernig á maður annars að þýða "mogginn rules"? Ræður, stjórnar, toppar? 

laugardagur, janúar 05, 2008

Blue-ray vs. HD-DVD baráttunni að ljúka?

Hmmm.... kannski að baráttunni milli Sony (Blue-ray) og Toshiba (HD-DVD) fari núna að ljúka nú þegar Warner munu eingöngu gefa út venjulega DVD og Blue-ray diska frá maí á þessu ári. Þá ku yfirgnæfandi meirihluti (um 70%) af stóru aðilunum í HD útgáfu vera komnir á Blue-ray. Sjá annars frétt um þetta hér

föstudagur, janúar 04, 2008

Íslenskir auglýsendur, leikir fyrir börn og klám - hluti III

Sunnudaginn 15. des. 2007 kom blessaður Mogginn út með þessa frétt (sjá blogg um þetta hér), sem var þann daginn frétt nr. 1 í listanum yfir mest lesnu fréttirnar á vef mbl.is. Misgáfulegir einstaklingar blogguðu um fréttina og hreinlega "föttuðu" augsýnilega ekki um hvað málið snýst. Það er ekki eins og það sé verið að tala um saklausar myndir af fáklæddu fólki. Nei - leikjanet er vefsetur sem stílar inná að bjóða börnum uppá ókeypis netleiki - og hverskonar vefsetur haldið þið að séu á bakvið auglýsingu eins og "Watch free sexy webcam girls" sem var fest við Tomma og Jenna leik - ef það er ekki hreint og beint klámvefsetur þá er slíkt klámvefsetur í amk í eins til tveggja músarsmells fjarlægð á því vefsetri.

Auk þess var auglýsingin ekki alltaf að birtast á síðunni - það voru mismunandi auglýsingar sem rúlluðu þarna í gegn. Þannig að foreldrar sem hafa athugað leikinn og talið hann í lagi (og gefið börnunum leyfi á að spila hann) hafa nú líklega ekki átt von á því að einn daginn mundi dúkka upp tenging á klámsíðu fyrir neðan leikinn.

miðvikudagur, janúar 02, 2008

Smá sýnishorn af flugeldasýningunni um áramótin

séð úr Stuðlaberginu...

laugardagur, desember 15, 2007

Íslenskir auglýsendur, leikir fyrir börn og klám - hluti II

Blessaður mogginn kom út með þessa frétt

föstudagur, desember 14, 2007

Íslenskir auglýsendur, leikir fyrir börn og klám?

Póstaði þetta á MBL.is - sjáum hverju það skilar:
Góðan daginn Morgunblaðið.

Hérna er nú kannski eitthvað sem vert er að vekja athygli á. Ef farið er inná leikjanet (www.leikjanet.is) þá eru þar ýmsir leikir sem eru ætlaðir börnum. T.d. er einn Tommi og Jenny leikur hérna: http://www.leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=1248 - svona dæmigerður hopp-og-skopp leikur fyrir krakka. Efst á skjánum rúlla í gegn auglýsingar frá fyrirtækjum eins og Kaupþingi og EJS en neðst er boðið upp á "Watch Free Sexy Webcam girls" með tilheyrandi hlekki. Nú er mér spurn hvort að foreldrar taki eftir því að sumar af þessum auglýsingum sem rúlla þarna í gegn eru ekki beint ætlaðar börnum, og einnig hvort að þessi íslensku fyrirtæki sem þarna auglýsa geri sér grein fyrir í hverskonar samfloti þau eru. Hvort að foreldrar geri sér grein fyrir að frá leikjaneti eru bara örfáir músarsmellir í klámsíður.

Með kveðju,
Arnar Freyr Guðmundsson

miðvikudagur, desember 12, 2007

Bókarflokkar sem taka endi

Ég skrifaði hér áður um bókaflokka sem engan enda ætla að taka þar sem höfundarnir hafa tekið upp á því að deyja áður en þeir náðu að klára síðustu bókina/bækurnar í seríunni. En það eru svo sem nokkrar góðar seríur sem er óhætt að byrja á (og ég mæli með). Stephen King náði að klára Dark Towers seríuna eftir að hafa verið að bögglast með sögurnar og tengja við aðrar bækur sínar eiginlega allan sinn rithöfundarferil - hann á það líka til blessaður að teygja lopann ansi mikið í sumum bókunum sínum. Sonur Frank Herberts, Brian Herbert hefur ásamt Kevin J. Anderson lokið við Dune bókarflokkinn (ég á sjálfur eftir að lesa tvær síðustu sem sonurinn gaf út), auk þess sem þeir félagarnir skrifuðu 6 bækur sem gerast á undan upprunalegu Dune bókunum. Þannig það er nokkuð óhætt að lesa allan Dune sagnabálkinn. Þríleikur Richard Morgan um Kovacs, bækurnar "Altered Carbon", "Broken Angels" og "Woken Furies", eru með betri SciFi bókum sem ég hef lesið - hver um sig með sjálfstæðum söguþræði - aðalpersónan og sá heimur sem hún lifir í tengir bækurnar saman. Sérstaklega var sú fyrsta, "Altered Carbon", góð. Aðrar seríur sem ég mæli með eru t.d. Earthsea bækurnar eftir Ursula Le Guin, Forever bækurnar (lauslega tengdar saman) eftir Joe Haldeman - af þeim unnu Forever War og Forever Peace báðar Hugo og Nebula verðlaunin - ekkert slor það, og síðan eru Riverworld bækurnar eftir Philip José Farmer einnig góðar.

miðvikudagur, desember 05, 2007

Ólesið...

Enn meira um bækur... Í bjartsýniskasti fyrir nokkrum árum keypti ég þrjá doðranta eftir Peter Hamilton, "The Reality Dysfunction", "The Neutronium Alchemist" og "The Naked God", yfir 1200 bls. hver bók. Þær hafa bara verið uppá punt uppí hillu hjá mér hingað til. Ku víst vera fantagóðar SciFi óperur en ég semsagt hef ekki náð að byrja á þeim - svitna eiginlega bara á því að sjá þær í hillunni.  Ég á eiginlega orðið ískyggilega mikið af ólesnum bókum - er ennþá á blessuðum bókarkaupshraðanum sem ég var á þegar ég var á menntaskólaaldri en hef ekki aðlagað hann að breyttum frítíma (þ.e.a.s. skorti á frítíma).

sunnudagur, desember 02, 2007

Alltaf gaman að fikta með nýjar græjur


Jebb - Núna er ég að leika mér með nýja leikfangið. Nefnilega Apple iMac 24" Core 2 2.8GHz Extreme. Ýmiss forrit sem fylgja með sem gaman er að fikta í. 

laugardagur, desember 01, 2007

X - loksins

Jebb - loksins, loksins... Er búinn að svíkja lit. Renndi við í Apple búðinni áðan og labbaði út með iMac "24.

föstudagur, nóvember 30, 2007

Meira af myndasögum

Ég skrifaði/bloggaði á miðvikudaginn um myndasöguna Sandman eftir Neil Gaiman en það eru nokkrir aðrir höfundar sem ég hef verið að lesa myndasögur eftir - og held uppá. Til dæmis er ég mjög hrifinn af sögum eftir Alan Moore (From Hell, V for Vendetta, Watchmen, Smax, The League of Extr. Gentlemen, Top 10, Tom Strong ofl.), Bill Willingham (Fables), Frank Miller (Sin City, RoboCop, Ronin, Year One, The Dark Knight Returns og The Dark Knight Strikes Again) og Mike Mignola (Hellboy og B.P.R.D). En hvað húmor í myndasögum varðar þá kemst enginn með tærnar þar sem Gary Larson hefur hælana - The Far Side toppar þar allt sem hægt er að toppa. Alveg hreinar línur.

fimmtudagur, nóvember 29, 2007

Bókarlestur... Í vinnslu...

Áfram um bækur... Ég er núna að lesa þriðju og síðustu bókinni, "The Last Colony", í þríleik John Scalzi sem hófst í "Old Man's War", og hélt áfram í gegnum aukapersónu úr fyrstu bókinni í "The Ghost Brigades" - tvær fyrstu bækurnar eru fantagóðar og byrjunin á númer þrjú lofar góðu.