þriðjudagur, desember 20, 2005
17. janúar 2006 er dagurinn...
Já - það er búið að ákveða afmælisdag barnsins, hann verður 17. janúar. Semsagt Kristín fer í keisarann 17. janúar 2006 - nema móðir náttúra ákveði að flýta þessu eitthvað. Dálítið skrítið að vita dagsetninguna svona nákvæmlega... Arrr..... og það er örstutt í þetta.... hólímólí.....
Labels:
Fjölskyldan
| Reactions: |
sunnudagur, desember 18, 2005
Þetta er nú bara sprenghlægilegt...
Myndin "Superman Returns" ku víst vera á leiðinni, í leikstjórn Bryan Singer. En það kom víst babb í bátinn... Súpermann ku víst vera "of stór" fyrir hvíta tjaldið.... ehemm.... ekki er nú öll vitleysan eins, og nei það er víst ekki 1. apríl í dag.
Labels:
Kvikmyndir,
SciFi
| Reactions: |
laugardagur, desember 17, 2005
Bráðum koma blessð jólin og ....
20. des. fer ég í síðasta prófið. Púff..... mikið verður gott þegar þessari törn verður lokið. Hmmm.... hef ekki einu sinni getað séð King Kong ennþá :( Og svo er Narnia á leiðinni, og "directors cut" af Sin City á DVD - jamm það verður nóg að gera um jólin :)
Arrr.... já - fyrir þá sem það ekki vita þá er ég í mastersnámi í tölvunarfræðum í HÍ. Og líkar vel. Mæli hikstalaust með því fyrir þá sem hafa verið nokkur ár á vinnumarkaðnum að smella sér í framhaldsnám, ágæt og fersk tenging aftur við fagið að fara í masterinn. Svolítið öðrvísi að læra núna fyrir próf heldur en áður - enda aðstæður aðeins öðrvísi núna heldur en '97. Minna stressaður (sem betur fer) en minni tími (því miður).

fimmtudagur, desember 01, 2005
Nýtt mátskjal fyrir bloggið
Þá er að prófa nýtt útlit á bloggið, ég ætlaði að virkja "comment" möguleikann aftur sem ég var einu sinni með hérna inni frá Haloscan en það gekk nú ekki alveg. Auk þess sem að þá höfðu gömlu "comment"-in öll dottið út. Í fyrstu leit þó út fyrir að þetta yrði lítið mál, þ.e. HaloScan taldi mér trú um að þeir gætu gert þetta bara nokkuð sjálfvirkt, þ.e. sett inn "comment" fítusinn á bloggið. Ég renndi í gegnum einhver skref í töfra/álf (wizard) hjá þeim og ekkert skeði, nema að mátskjalið sem ég var áður með skemmdist eitthvað, svo ég ætla bara prófa nýtt og virkja comment möguleikann sem er innbyggður í Blogger.com.
Subscribe to:
Posts (Atom)