
Fór í laxveiði í Svarthöfða í Borgarfirði um daginn, fékk alls 5 laxa og tvo sjóbirtinga. Mjög góð ferð enda algjört toppstaður. Seinni daginn, um morguninn var ég að veiða á maðk og það kom einn á sem sleit eins og skot - og sleit þannig að það var augljóst að línan hefur verið eitthvað slöpp eða sargast af við stein því bremsan á hjólinu var alveg akkúrat stillt og það náði ekki einu sinni að reyna á hana. Ekki nema hvað - eftir hádegi þá fer ég neðar í ána og prófa devon. Eftir að hafa kastað í smá tíma þá festi ég í einhverju. Jamm og jæja - ég byrja að hala inn. Svo sé ég að devoninn stendur eins og í lausu lofti strengdur út í á... hmmm.... eins og ég hafi fest í einhverjum girnisspotta. Svo finn ég að það er eitthvað sem kippir í!!! Úps.... nú var um að gera að ná að grípa í spottann áður en hann losnaði af því ég gat ekki séð að það væri nein flækja sem ég hefði fest í. Ég náði að teygja stöngina það langt fyrir aftan mig með annari hendinni þannig að ég gat með hinni teygt mig í línuna sem ég hafði fest í. Þegar ég hafði náð í línuna og vafið henni um hendina á mér (já ég endaði á því að skera mig á girninu) þá sá ég að skammt frá bakkanum synti þessi væni lax. Nú var stönginni hent frá í snarheitum, ríghaldið í girnisspottann og reynt að ná gripnum á land. Og eftir smá stund kom í land þessi væni 5 punda lax, ennþá með girnið, segulnaglann, öngulinn og orminn sem hann hafði nappað af mér um morguninn. Feigur var hann blessaður.

0 comments:
Sendu inn athugasemd