miðvikudagur, október 11, 2006

Betan af Blogger.com og Google docs

Loksins virkaði það að uppfæra mátskjalið fyrir bloggið í betunni frá Blogger.com. Ég er svosem ekki búinn að leika mér neitt mikið með þetta - bætti við RSS efnisveitu frá SciFi Wire. Missti við þetta út sérbreytingar sem ég var búinn að gera á mátskjalinu, en ég átti von á því. Set þær inn aftur seinna. En kerfið sem slíkt er orðið miklu sneggra og léttara heldur en það var áður. Manni dettur í hug AJAX (nei ekki þvottaefnið!). En jamm, svo tæknin þrammar áfram, eitt skref í einu, og stundum tvö afturábak - hó hvað þetta var mikil klisja :)

Jeminn.... maður fær nú bara svona ómægod fíling.... svona tölvunjarðarlega séð.... Þegar ég var að pósta út bloggið (eins gott að íslenskukennarinn minn frá ML sjái þetta ekki) þá komu upp þessi skilaboð:

Write. Share. Post.

New! Post to Blogger from Google Docs & Spreadsheets.

Mennirnir eru barasta alltaf að tengja...