miðvikudagur, október 11, 2006

Google Docs & Spreadsheets

Kemur ekki á óvart en Google er að mjaka sér meir og meir inná það sem hingað til hefur verið algjört yfirráðasvæði Microsoft. Núna seinast með Google Docs & Spreadsheets. Og þeir halda áfram með að tengja gmail aðganginn manns við aðgang að þjónustum Google. Gekk frekar snurðulaust fyrir sig, fór inn á http://docs.google.com/ og þá pikkaði Google strax upp gmail aðganginn minn og ég var kominn með aðgang og eigið svæði á 2 sek. Sýnist þetta vera nokkuð svalt hjá þeim - svosem ekki von á öðru. Svar Microsoft við þessu verður líklega það (skv. þeirri fiskisögu sem flýgur um á netinu) að Microsoft Works verður gert að hýstri þjónustu svipað og Google er að gera með Google Docs & Spreadsheets.

Hmmm.... svalt... hægt að vista niður í ýmiss snið