Ætli Gustav Holst hefði ekki verið glaður þegar Plútó var flokkuð út úr samfélagi plánetna í sólkerfinu okkar fyrir stuttu. Fimmtán árum eftir að hann samdi snilldarverkið "The Plantets" þá fann bandaríski stjarnfræðingurinn Clyde Tombaugh Plútó. Holst bætti nú aldrei Plúto hluta við tónverkið en hann dó þremur árum eftir að Plútó fannst. Hann hlýtur nú samt að hafa bölvað - bara oggulítið - við fundinn. Það er sagt að Holst hafi ekki haft neinar fyriráætlanir um að bæta Plútó við verkið sitt, en það stoppaði svosem ekki Colin Matthews í því að bæta við verkið og semja sér Plútó hluta við það, sá hlýtur að bölva núna. En semsagt: Gustav Holst hafði þá rétt fyrir sér eftir allt saman.
p.s. Um að gera að prófa að hlusta á þetta tónverk. Sjálfum finnst mér Júpiter flottasti hlutinn - rétt rúmum þremur mínútum inn í því lagi kemur ein flottasta tónlist sem ég hef heyrt. Síðan er Mars lagið skemmtilega kröftugt - eitthvað sem sá sem samdi tónlistina fyrir Aliens myndina hans James Cameroon hefur verið sammála mér um þegar hann þurfti eitthvað kröftugt stef fyrir eitt aðal spennuatriðið. Stefið í myndinni er auðheyranlega fengið að láni úr Mars.
sunnudagur, október 01, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd