fimmtudagur, október 19, 2006
IE7 kominn út og ....
strax búið að finna veikleika í honum. Já það tók ekki langan tíma. Ég sá fréttir á netinu í gærkvöldi um að nýja útgáfan af vefráparanum frá Microsoft, Internet Explorer 7 , væri komin út og strax núna í morgun voru menn búnir að finna veikleika í honum, sjá hérna. Menn eru nú líklega ekki ánægðir í herbúðum Microsoft með þetta - en líka spurning hvort menn voru ekki búnir að finna veikleikann í betunni af vefráparanum og biðu með að tilkynna hana þangað til að endanleg útgáfa kom út, svona til að fá meiri athygli - oft eru þetta ráðgjafar sem finna þessa veikleika og þeir eru jú m.a. að reyna vekja athygli á sjálfum sér og sinni þjónustu, skapa sér nafn í geiranum. Veikleikinn er þannig að ef þú ert t.d. með margar síður opnar, t.d. netbankann þinn og einhverja aðra síðu foo, þá gæti sá aðili sem hýsir síðu foo komist í upplýsingar frá netbankasíðunni. En það er svosem einfalt að koma í veg fyrir þetta - nefnilega að vera ekki að skoða neitt annað þegar maður er á einhverri vefsíðu sem hugsanlega inniheldur gögn sem maður vill ekki að leki neitt út.
Labels:
Tækni
| Reactions: |
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd