Var að fara með bloggið í einhverskonar beta útgáfu af blogg kerfinu frá blogger.com. Ein breytingin er að þá er maður að nota @gmail.com aðganginn til að auðkenna sig inná kerfið fyrir blogg aðganginn - sem er svosem ágætt. Þeir virðast m.a. vera koma með svipaðan "drag & drop" fítus til að hanna bloggsíðuna sjálfa, svipað og er með RSS hlutina sem maður getur raðað á manns eigin google heimasíðu (http://www.google.com/ig?hl=en) , en til þess að virkja það þá þurfti maður víst að uppfæra mátskjalið eitthvað fyrir bloggið og það virkaði nú ekki alveg hjá þeim fyrir bloggið mitt - líklega þessvegna sem þetta kallast ennþá beta útgáfa.
Annars var ég að finna snilldarapparat fyrir Nokia 9300i símann sem ég er með, virkar fyrir þá síma sem eru með Java. Nefnilega RSS lesari á símann. Þannig að nú getur maður, á sama hátt og á Google heimasíðunni, sett inn RSS áskriftir sem verða aðgengilegar á símanum. Fínt til að fylgjast með fréttum. Er nú þegar búinn að setja RSS vísanir fyrir gamla góða moggann þarna inn. Herlegheitin eru aðgengileg á http://www.widsets.com
sunnudagur, október 08, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd