mánudagur, október 02, 2006

Plássvandræði á C-drifi og atburðaskrár

Og maður kallar sig tölvunjörð... Hálf imbalegt að hafa ekki fattað þetta fyrr. Ég er semsagt búinn að vera lengi í plássvandræðum með C-drifið á tölvunni minni, og var alveg við það að fara strauja aukadiskinn í vélinni (sem er með Linux stýrikerfi) til að fá meira pláss þegar ég fann sökudólginn. Júbb... það er víst hollt að athuga hvort að forrit sem skráir nákvæma atburðasögu geri það nokkuð "alltof nákvæmlega" - það kostar víst eitthvað pláss að geyma slík gögn. Ég komst að því að eitt forritið sem ég nota til að stjórna hvað kemst inná tölvuna mína og hvað ekki (ekki beint eldveggur samt) var búið að eyða frekar miklu púðri í að skrá hvað hefur verið að gerast á tölvunni minni. Jamm & jæja... kippti því í liðinn.... og 120 GB diskurinn sem hefur verið þvísemnæst fullur í dálítið langan tíma með tilheyrandi vandræðum er núna með um 60 GB laus!!!