mánudagur, október 16, 2006

Tómas Orri í heimsókn í vinnuna

Tómas Orri kom í heimsókn í vinnuna til mín í dag. Guðrún Herdís hafði nefnilega verið hjá mér í vinnunni um daginn og hann var eitthvað farinn að kvarta yfir því að hann fengi ekki að fara í heimsókn í vinnuna til hans Pabba eins og stóra systir. Þannig að þegar Kristín fór með Guðrúnu Herdísi í ballett í dag þá skutlaði hún Tómasi Orra í heimsókn til Pabbans í leiðinni. Hann unir sér nú ekki alveg eins mikið inni á skrifstofu hjá mér eins og eldri systirin kallinn - enda svosem ekki skrítið. En ég átti ennþá ofaní skúffu hjá mér eitthvað dót frá því að Guðrún Herdís kom fyrir löngu löngu síðan - og dró það upp núna fyrir hann, tússlitir og form til að strika eftir. Það hélt athyglinni svosem ekki lengi - hann er nú meira gefinn fyrir leikfangadýr, kubba og bíla heldur en eitthvað litastúss. En við náðum að draga upp nokkrar myndir þarna í sameiningu áður en við fórum heim. Ég prísa mig bara sælan að hafa munað eftir að taka til á borðinu áður en við fórum heim. Einhver hefði kannski farið að spá í hvað í ósköpunum ég væri að gera í vinnunni yfir daginn ef viðkomandi hefði séð tússlistaverkin eftir soninn liggjandi á borðinu.