- Windows 2000, Windows XP, eða Windows 2003
- Sun Java JRE 1.5.0_06
- Internet Explorer 6.x, Opera 9.x, or Firefox 1.5.x
- Nýjasta útgáfan af Microsoft Windows Update
laugardagur, desember 09, 2006
Ókeypis öryggisskönnun í boði Secunia
Ég hef verið á póstlista hjá Secunia fyrirtækinu sem vaktar hvaða veikleikar eru í gangi í hinum og þessum forritum, hvort sem er á Windows, Linux, MacOS, Solaris o.s.fr. Ég hef síðan síað út það sem skiptir ekki máli fyrir það umhverfi sem við erum með í vinnunni. Það geta verið ansi margir veikleikar sem koma upp á degi hverjum, t.d. 21 stk. núna síðasta föstudag. Það hefur verið vandamál að fylgjast með hvort hin og þessi forrit frá mismunandi framleiðendum séu "up-to-date", allir hafa þeir mismunandi leiðir til að láta notendur vita af nauðsynlegum uppfærslum á forritum sínum - ef þeir gera það yfirleitt. En Secunia var að koma með ágætt "On-Line" tól sem getur eitthvað hjálpað til við þetta. Tólið notast við Java keyrsluvélina og skannar tölvuna þína og kemur með lista yfir forrit sem eru í lagi og þau forrit sem vitað er að þarfnist uppfærslu, ásamt grunn leiðbeiningum hvað eigi að gera. Slóðin á þetta tól er http://secunia.com/software_inspector/ um að gera að prófa keyra þetta a.m.k. einu sinni, hentar kannski ekki vel til notkunar í tölvuumhverfi fyrirtækja nema fyrir svona stikkprufur, en prýðilegt fyrir heimatölvur, grunnkröfurnar eru:
Labels:
Tækni
| Reactions: |
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd