laugardagur, maí 19, 2007
Í Búdapest með nesti og nýja skó
Hóhó... ég er í Búdapest, Ungverjalandi. Kom hingað á föstudaginn og fer til baka á Klakann á fimmtudag. Er einn hérna í vinnuferð en hef helgina til að skoða mig um, vinnan byrjar þannig lagað ekki fyrr en á sunnudagskvöld (já - ok það er kannski ekki réttlætanlegt að kalla kvöldverðarboð vinnu - en ég þarf að mæta og og má ekki mæta í sundskýlu einum fata). Í dag fór ég í þennan hefðbundna skyldulabbitúr, þ.e. labbitúrinn þar sem arkað er af stað niður í bæ í ómögulegum skóm þannig að maður er kominn með ágætis blöðrur strax eftir nokkra kílómetra. Já - eftir um 2 kílómetra labb var ég eiginlega búinn að fá nóg, fann skóbúð og keypti þar of litla sandala (hefði mátt vanda mig aðeins betur). Ég sirkaði út skóna sem mér sýndist að færu best með þessum splunkunýju blöðrum sem ég var kominn með á báða fæturna og spurði búðarkonuna á ensku hvort ég gæti mátað..... ekki var hún sleíp í ensku konan, talaði bara við mig á ungversku allan tímann en spurði mig þó: "prófa?" - já eitthvað sameiginlegt með okkur. A.m.k. kann ég núna eitt orð í ungversku.
Labels:
Ferðalög
| Reactions: |
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd