miðvikudagur, ágúst 29, 2007
Kjarrá í Borgarfirði
Datt heldur betur í lukkupottinn. Komst óvænt í laxveiði í Kjarrá í Borgarfirði. Fór á sunnudag og kom heim aftur í dag, með sjö laxa. Frábær ferð í alla staði, kokkur og tilheyrandi þjónusta á staðnum, heitur pottur og gufa - ágætis lúxus. Það eru leyfðar sjö stangir í ánni í einu og yfirleitt tveir um stöng en hópurinn okkar náði alls 73 stykkjum á land. Í Kjarrá má aðeins veiða á flugu þannig að ég var nú ekki bjartsýnn á að ég mundi fá eitthvað (ekki laginn á flugu) en náði aðeins að laga kastið hjá mér þannig að þetta fór bara nokkuð vel. Reyndar náði ég að brjóta stöngina mína í dag á síðasta klukkutímanum. Var nýbúinn að missa einn vænan (vantaði bara agnarlítið uppá að hann kæmi uppá land), hvíldi þá hylinn í 10 mín og síðan kom lax á í fyrsta kasti eftir hvíldina. Afrekaði að hrasa með stöngina þegar ég var að ná honum upp á þurrt þannig að hún stakkst niður og brotnaði - en ég náði þó laxinum. Sem betur fer er þetta stöng (Sage) sem er með lífstíðarábyrgð (skiptir ekki máli hvernig maður brýtur hana). Nú þarf ég bara að finna blessað ábyrgðarskírteinið.
Labels:
Veiði
| Reactions: |
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd