laugardagur, ágúst 25, 2007

WGA rusl

Hlaut að koma að því... og kemur svosem ekki á óvart - þ.e. WGA miðlarar Microsoft ku liggja niðri sem veldur því að Windows Vista og Windows XP geta verið merkt sem óleyfileg (i.e. non-genuine) með tilheyrandi skerðingu á virkni stýrikerfisins. Kannski eins gott að bíllinn hjá manni skuli ekki vera meira tölvustýrður heldur en hann er, annars gæti maður átt á meldingu eins og t.d. "Því miður. Þú ert ekki að keyra með leyfilegt eintak af Windows Car OS (tm) og fær því ekki að taka hægri beyjur né bremsa lengur en í 3 sekúndur fyrr en þú hefur keypt leyfilegt eintak af Windows Car OS (tm)"

0 comments: