miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Bjólfur, Neil Gaiman

Var rétt í þessu að koma af þrívíddar (3D) sýningu á Beowulf. Fantagóð, sérstaklega flott 3D atriðin í lokin. Myndin var eiginlega mun betri en ég átti von á - sem er nú alltaf skemmtilegra. Þrívíddartæknin var alveg að virka og það verður gaman að sjá hvernig James Cameron tekst til við þrívíddarmyndina sína sem skv. IMDB er ekki Avatar eins og ég hélt heldur Battle Angel (byggð á japanskri teiknimyndasögu). En aftur að Beowulf - handritið er skrifað af Neil Gaiman og Roger Avary, en Neil Gaiman þessi er nokkuð skemmtilegur fír - hann heldur úti skemmtilegu bloggi sem ég hef verið að fylgjast með í nokkurn tíma (gegnum RSS) á http://www.neilgaiman.com/ - fylgdist sérstaklega vel með því þegar hann heimsótti Guillermo del Toro í Ungverjalandi þar sem sá síðarnefndi er að taka upp Hellboy 2 - þá var reyndar dóttir Gaimans sérstakur gestabloggari á meðan heimsókninni stóð (og allt í fínu með það). Núna er einnig verið að sýna aðra mynd sem byggir á sögu (bók) eftir Gaiman, nefnilega Stardust - sem ég sá um daginn og fannst nú bara nokkuð góð, svona létt fantasíu mynd. Ég hef nú annars ekki lesið neina skáldsögu eftir Gaiman (á Stardust uppí hilli - að sjálfsögðu) en á nokkrar myndasögur eftir kappann. Hans aðalverk er Sandman sem komu út á árunum 1989 og 1996, og er verið að gefa út um þessar mundir í heild sinni í fjórum stórum veglegum bókum (omnibus) - sem ég á tvær fyrstu af. Sandman er tær snilld - með því besta sem ég hef lesið í myndasögum, vonandi að restin sé eins góð (eða betri) og byrjunin.

0 comments: