Eitt sem ég ætla að hætta að gera. Það er að kaupa bækur í bókaflokkum sem höfundarnir eru ekki búnir að ljúka við. Merkilegt nokk en það kemur nefnilega fyrir að höfundarnir deyja áður en þeir ná að klára síðustu bókina í seríunni. Isaac Asimov (höfundur I Robot) skrifaði hinar frábæru Foundation bækur en síðasta bókin, Foundation and Earth, endaði eiginlega í lausu lofti og kallinn dó áður en hann náði að klára dæmið (skv. ekkju hans þá ku hann hafa sjálfur sagt að hann vissi ekki hvernig hann ætti að halda áfram eftir Foundation and Earth). Frank Herbert skrifaði nokkrar Dune bækur (sú fyrsta er mest selda vísindaskáldsaga frá upphafi) og eins og hjá Asimov endaði sú síðasta líka í lausu lofti. Nýjasta dæmið er Robert Jordan sem skrifaði Wheel of Time bækurnar, bókarflokkur sem byrjaði mjög vel en ku víst vera ansi teygður í seinni bókum (ég er á bók nr. 5) - Robert Jordan dó núna í sumar og náði ekki að klára 12 og síðustu bókina en skildi eftir sig eitthvað efni þannig að menn halda að ekkjan og útgefandinn munu fá einhvern til að ljúka við síðustu bókina (sem verður þá líklega skipt i tvennt - það er ku víst vera það mikið af lausum endum sem átti að hnýta í síðustu bókinni að hún gæti orðið of stór fyrir staka bók). Svo er nú eins gott að Stephen Donaldson nái að klára síðustu bókina í Covenant seríunni, búinn að gefa út 8 bækur og sú síðasta á að koma út 2009 (held ég).
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd