föstudagur, nóvember 23, 2007

Er Ísland tilvalið fyrir....?

Það er gömul (og þreytt) klisja að Ísland sé tilvalið tilraunasvæði fyrir ýmsa nýja tækni vegna þess hversu nýjungagjarn landinn sé. Eitt lítið smáatriði sem virðist vera hindra þetta, þ.e.a.s. það ku víst aðeins búa um 300. þús. eintök af okkur hérna á skerinu. Það sem fer eintaklega mikið í taugarnar á mér er að við höfum ekki aðgang að hinum ýmsu vefverslunum sem dreifa efni á rafrænan hátt til viðskiptavina sinna og auka um leið á notagildi viðkomandi "græju", t.d. er ekki greið leið fyrir íslendinga að iTunes, PS3 (PSN), XBox 360, Wii og PSP vefverslununum. Sem PS3 eigandi finnst mér það ansi fúlt að PS3 vefverslunin skuli vera lokuð fyrir ákveðin lönd, eitthvað sem var ekki uppi á borðinu fyrr en þónokkru eftir að vélin var komin á markað (og ég búinn að kaupa gripinn).

0 comments: