sunnudagur, nóvember 25, 2007

Terry Pratchett

Ég fór fyrir nokkru síðan að hlusta á bækur eftir Terry Pratchett (keyptar á www.audible.com), og hlusta þá aðallega á hljóðbækurnar í bílnum á leiðinni í og úr vinnunni (nota Apple Ipod og FM sendi). Discworld bækurnar hans eru algjör snilld, brilliant húmor. Ég er núna búinn að hlusta á 10 fyrstu bækurnar í seríunni + bók númer 19 (feet of clay) en Pratchett er búinn að skrifa 36 stykki og er ennþá að. Eins og vanalega þá hefur maður sem íslendingur takmarkaðan aðgang að vefverslunun eins og www.audible.com - sem er starfrækt í USA. Takmörkunin felst í því að maður getur ekki keypt allar bækurnar frá þeim. Í tilfelli Terry Pratchett þá hefur maður ekki aðgang að óstyttu útgáfunum af öllum hljóðbókunum hans sem er frekar pirrandi.

Núna er búið að þýða fyrstu Discworld bókina hans yfir á íslensku (Litbrigði galdranna) sem ég ætla nú reyndar að kaupa og lesa þótt ég hafi áður hlustað á hljóðbókina. Það verður forvitnilegt að sjá hvernig þýðingin hefur tekist. Áður hafa verið þýddar eftir Pratchett tvær fyrstu bækurnar, Trukkers og Diggers (sem ég hef lesið), úr Bromeliad þríleiknum en síðasta bókin, Wings, hefur ekki ennþá verið þýdd.

0 comments: