miðvikudagur, desember 12, 2007

Bókarflokkar sem taka endi

Ég skrifaði hér áður um bókaflokka sem engan enda ætla að taka þar sem höfundarnir hafa tekið upp á því að deyja áður en þeir náðu að klára síðustu bókina/bækurnar í seríunni. En það eru svo sem nokkrar góðar seríur sem er óhætt að byrja á (og ég mæli með). Stephen King náði að klára Dark Towers seríuna eftir að hafa verið að bögglast með sögurnar og tengja við aðrar bækur sínar eiginlega allan sinn rithöfundarferil - hann á það líka til blessaður að teygja lopann ansi mikið í sumum bókunum sínum. Sonur Frank Herberts, Brian Herbert hefur ásamt Kevin J. Anderson lokið við Dune bókarflokkinn (ég á sjálfur eftir að lesa tvær síðustu sem sonurinn gaf út), auk þess sem þeir félagarnir skrifuðu 6 bækur sem gerast á undan upprunalegu Dune bókunum. Þannig það er nokkuð óhætt að lesa allan Dune sagnabálkinn. Þríleikur Richard Morgan um Kovacs, bækurnar "Altered Carbon", "Broken Angels" og "Woken Furies", eru með betri SciFi bókum sem ég hef lesið - hver um sig með sjálfstæðum söguþræði - aðalpersónan og sá heimur sem hún lifir í tengir bækurnar saman. Sérstaklega var sú fyrsta, "Altered Carbon", góð. Aðrar seríur sem ég mæli með eru t.d. Earthsea bækurnar eftir Ursula Le Guin, Forever bækurnar (lauslega tengdar saman) eftir Joe Haldeman - af þeim unnu Forever War og Forever Peace báðar Hugo og Nebula verðlaunin - ekkert slor það, og síðan eru Riverworld bækurnar eftir Philip José Farmer einnig góðar.

0 comments: