laugardagur, desember 15, 2007
Íslenskir auglýsendur, leikir fyrir börn og klám - hluti II
| Reactions: |
föstudagur, desember 14, 2007
Íslenskir auglýsendur, leikir fyrir börn og klám?
Hérna er nú kannski eitthvað sem vert er að vekja athygli á. Ef farið er inná leikjanet (www.leikjanet.is) þá eru þar ýmsir leikir sem eru ætlaðir börnum. T.d. er einn Tommi og Jenny leikur hérna: http://www.leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=1248 - svona dæmigerður hopp-og-skopp leikur fyrir krakka. Efst á skjánum rúlla í gegn auglýsingar frá fyrirtækjum eins og Kaupþingi og EJS en neðst er boðið upp á "Watch Free Sexy Webcam girls" með tilheyrandi hlekki. Nú er mér spurn hvort að foreldrar taki eftir því að sumar af þessum auglýsingum sem rúlla þarna í gegn eru ekki beint ætlaðar börnum, og einnig hvort að þessi íslensku fyrirtæki sem þarna auglýsa geri sér grein fyrir í hverskonar samfloti þau eru. Hvort að foreldrar geri sér grein fyrir að frá leikjaneti eru bara örfáir músarsmellir í klámsíður.
Með kveðju,
Arnar Freyr Guðmundsson
| Reactions: |
miðvikudagur, desember 12, 2007
Bókarflokkar sem taka endi
Ég skrifaði hér áður um bókaflokka sem engan enda ætla að taka þar sem höfundarnir hafa tekið upp á því að deyja áður en þeir náðu að klára síðustu bókina/bækurnar í seríunni. En það eru svo sem nokkrar góðar seríur sem er óhætt að byrja á (og ég mæli með). Stephen King náði að klára Dark Towers seríuna eftir að hafa verið að bögglast með sögurnar og tengja við aðrar bækur sínar eiginlega allan sinn rithöfundarferil - hann á það líka til blessaður að teygja lopann ansi mikið í sumum bókunum sínum. Sonur Frank Herberts, Brian Herbert hefur ásamt Kevin J. Anderson lokið við Dune bókarflokkinn (ég á sjálfur eftir að lesa tvær síðustu sem sonurinn gaf út), auk þess sem þeir félagarnir skrifuðu 6 bækur sem gerast á undan upprunalegu Dune bókunum. Þannig það er nokkuð óhætt að lesa allan Dune sagnabálkinn. Þríleikur Richard Morgan um Kovacs, bækurnar "Altered Carbon", "Broken Angels" og "Woken Furies", eru með betri SciFi bókum sem ég hef lesið - hver um sig með sjálfstæðum söguþræði - aðalpersónan og sá heimur sem hún lifir í tengir bækurnar saman. Sérstaklega var sú fyrsta, "Altered Carbon", góð. Aðrar seríur sem ég mæli með eru t.d. Earthsea bækurnar eftir Ursula Le Guin, Forever bækurnar (lauslega tengdar saman) eftir Joe Haldeman - af þeim unnu Forever War og Forever Peace báðar Hugo og Nebula verðlaunin - ekkert slor það, og síðan eru Riverworld bækurnar eftir Philip José Farmer einnig góðar.
| Reactions: |
miðvikudagur, desember 05, 2007
Ólesið...
Enn meira um bækur... Í bjartsýniskasti fyrir nokkrum árum keypti ég þrjá doðranta eftir Peter Hamilton, "The Reality Dysfunction", "The Neutronium Alchemist" og "The Naked God", yfir 1200 bls. hver bók. Þær hafa bara verið uppá punt uppí hillu hjá mér hingað til. Ku víst vera fantagóðar SciFi óperur en ég semsagt hef ekki náð að byrja á þeim - svitna eiginlega bara á því að sjá þær í hillunni. Ég á eiginlega orðið ískyggilega mikið af ólesnum bókum - er ennþá á blessuðum bókarkaupshraðanum sem ég var á þegar ég var á menntaskólaaldri en hef ekki aðlagað hann að breyttum frítíma (þ.e.a.s. skorti á frítíma).
| Reactions: |
sunnudagur, desember 02, 2007
Alltaf gaman að fikta með nýjar græjur

Jebb - Núna er ég að leika mér með nýja leikfangið. Nefnilega Apple iMac 24" Core 2 2.8GHz Extreme. Ýmiss forrit sem fylgja með sem gaman er að fikta í.
