mánudagur, janúar 28, 2008

Guillermo del Toro að leikstýra The Hobbit?

Vonandi verður eitthvað úr þessu. Guillermo del Toro ku vera í viðræðum við New Line Cinema um að leikstýra Hobbitanum (sem verða líklega tvær myndir - best að blóðmjólka kúna). Best hefði að sjálfsögðu verið ef Peter Jackson hefði séð alveg um þetta eins og LOTR - en það verður því miður ekki af því vegna annarra verkefna hjá Jackson (hann var búinn að lofa sér í Tinna fyrir Steven Spielberg). En mér líst mun betur á þessar fréttir heldur en þær að Sam Raimi myndi leikstýra Hobbitanum. Sam Raimi átti snilldarspretti með Evil Dead myndunum og Spider Man 2 (ekki síst að þakka Alfred Molina). En maðurinn klúðraði málunum svo hrikalega stórt í Spider Man 3 að það hálfa hefði verið nóg.

Ferlegt að málin hafi klúðrast svona milli New Line Cinema og Peter Jackson vegna deilna um greiðslur af LOTR myndunum til Jackson. Eftir að sættir náðust með Jackson og New Line varð það að samkomulagi að hann myndi sjá um framleiðslu á Hobbitanum. Það væri frábært ef sama teymið og sá um að skrifa handritið að LOTR myndi sjá um að skrifa handritið fyrir Hobbitan, eiginlega nauðsynlegt - svo ekki sé minnst á það allra nauðsynlegasta.... nefnilega það að Ian McKellen leiki Gandálf.

Guilermo del Toro er topp leikstjóri - eiginlega einn af mínum uppáhalds leikstjórum. Af myndunum hans þá á ég á DVD eða Blu-Ray myndirnar Cronos, Mimic, The Devil's Backbone, Blade II (besta Blade myndin), Hellboy (ein besta myndin gerð eftir comic - stendur jafnfætis Sin City) og Pan's Labyrinth). Hann hefur alveg sannað að hann er jafnvígur á spennu/action og drama og gerir flottar myndir (i.e. gott listrænt auga - a.m.k. að mínu mati). Enda bíður maður spenntur eftir Hellboy II: The Golden Army sem á að koma í bíóhúsin á þessu ári.

0 comments: