sunnudagur, febrúar 03, 2008

Horft aftur á Life of Brian

Ég er safnari. Já ég veit af þessum veikleika og er að reyna lifa með honum. En í síðustu viku réð ég ekki við mig. Ég fór og keypti Blu-Ray útgáfuna af "Monty Python's Life of Brian" sem ég átti fyrir á venjulegu DVD. Yfirvaldið skilur ekkert í þessari áráttu hjá mér og hristir bara hausinn yfir þessu. Ég horfði síðan á myndina aftur í gærkvöldi og síðan einnig á heimildarmynd um gerð myndarinnar - ótrúleg læti sem urðu í kringum myndina á sínum tíma. Trúlega fengist þessi mynd ekki gerð í dag - það má ekki móðga neinn, óþolið fyrir slíku er alveg í hámarki. Life of Brian er tvímælalaust ein besta gamanmynd og ádeilumynd sem gerð hefur verið. Uppáhaldsatriðið mitt í myndinni er skóatriðið þar sem Brian flýr undan "söfnuðinum" sínum og missir af sér skóinn, söfnuðurinn staðnæmist við skóinn þar sem hann liggur á götunni og fer strax að rífast um merkingu þessa - lýsandi fyrir trúarbrögð og klofning þeirra í mismunandi stefnur/trúarhópa með tilheyrandi átökum.