miðvikudagur, maí 07, 2008
Hvernig fara einstæðar mæður að?
Hmm... þetta er nú ekki alveg pólítískt rétthugsandi fyrirsögn hjá mér... Hvernig fer einstætt foreldri að? Aðeins betra... En svo ég komi mér að efninu þá fór Kristín til Danmerkur á vegum vinnunnar núna á þriðjudaginn og kemur til baka næsta laugardag, og það er sko nóg að gera að sjá einn um þessi þrjú á meðan. Maður þarf í stórum dráttum að ... hætta kl. 15:30 í vinnunni til að sækja fyrst þá yngstu til dagmömmu, síðan sækja strákinn á leikskóla, koma við í búðinni á leiðinni heim - engjast yfir því hvað eigi að vera í matinn, gefast upp og kaupa 1944 rétt, þegar heim er komið þá þarf að hlýða þeirri elstu yfir með flautuna (tónleikar hjá henni á morgunn), hafa samviskubit yfir því maður hafi smellt þeirri yngstu fyrir framan sjónvarpið, að setja í þvottavélina, hafa til matinn (guð sé lof fyrir örbylgjuofninn) og koma honum ofaní liðið, næst allir í náttföt (nema ég), bursta tennurnar í þeim tveimur yngstu - sú elsta sér um sig sjálf, lesa fyrir þá yngstu fyrir háttinn og síðan syngja bíbí & blaka og krummi krunkar úti - þá er hún búin að fá nóg og er alveg sátt við að fara sofa (bara ef hann hættir að syngja!!!), næst er að lesa fyrir strákinn fyrir háttinn og síðan fara þau tvö elstu að sofa, vaska upp (bévítans uppþvottavélin er biluð) & þurrka og ganga frá í eldhúsinu, brjóta saman það sem er orðið þurrt af snúrunum, hengja upp úr þvottavélinni og setja í næstu, ganga frá nestinu í skólann fyrir þá elstu og hafa til fötin fyrir strákinn sem er að fara í sveitaferð með leikskólanum í fyrramálið (og ég fer með). Og þá er klukkan orðin tuttugu mínútur í ellefu! Og ég sem ætlaði að ná að horfa á allt settið af Hringadróttinssögu á meðan Yfirvaldið væri í Danmörku. Það er ljóst að ég þarf að besta þetta ferli eitthvað.
Labels:
Fjölskyldan
| Reactions: |
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

0 comments:
Sendu inn athugasemd