laugardagur, febrúar 12, 2011

Internet Explorer 9 RC

ie9rc_disable_addons

Þetta er nú pínkupons spaugilegt. Ég setti upp Internet Explorer 9 RC (i.e. release candidate) á heimatölvunni minni og eitt það fyrsta sem vefráparinn stakk upp á þegar hann keyrði upp í fyrsta skipti var að gera óvirk nokkrar viðbætur sem væru að hægja á keyrslu hans. Helstu viðbætur sem vefráparinn leggur til að slökkt sé á til að flýta fyrir eru viðbætur sem eru frá Microsoft fyrirtækinu sjálfu. Ekki það að 0 komma eitthvað sekúndur sé eitthvað til að grenja yfir en margt smátt gerir eitt stórt.